Orkuveitan skoðar að reisa vindorkugarða í nágrenni Hellisheiðar

28. jún 2023

Orkuveitan

Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur lagt fram beiðni til Orkustofnunar um að verkefnisstjórn rammaáætlunar fjalli um þrjá vindorkukosti í nágrenni Hellisheiðar auk mögulegrar dæluvirkjunar sem nýtt yrði sem jöfnunarafl.

Við staðarval á tillögunum var horft til þess að áhrif á umhverfi, náttúru og samfélag yrðu sem minnst. Horft var til fyrirliggjandi gagna um vindskilyrði og nálægðar við röskuð svæði, flutningsvirki, starfssvæði OR samstæðunnar og svæða þar sem sjáanleg mannvirki eru fyrir.

Verði ákvörðun tekin um að halda áfram undirbúningsvinnu vegna virkjunarkostanna, verður ráðist í rannsóknir á vindskilyrðum með mastri sem og á mikilvægum umhverfisþáttum svo sem áhrif á fuglalíf og sjónræn áhrif, í samráði við sérfræðinga og hagaðila.

Tillögur OR eru eftirfarandi:

Vindorkukostir:

  • 50-150 MW Vindorkugarður við Lambafell í Ölfusi.
  • 50-108 MW Vindorkugarður við Dyraveg í Ölfusi.
  • 50-144 MW Vindorkugarður við Lyklafell í Mosfellsbæ.

„Vinnsla á endurnýjanlegri orku skiptir lykilmáli þegar kemur að baráttunni við loftslagsvána. Orkuskiptin eru þýðingarmikil til að ná markmiðum stjórnvalda í loftslagsmálum,og kalla þau á endurnýjanlega raforku, eins og vindorku. Í samræmi við eigendastefnu OR sem er orku- og veitufyrirtæki í almannaeigu berum við samfélagslega ábyrgð á orkuöflun. Við leggjum áherslu á að standa faglega að þessu verkefni og að vinna í sátt við umhverfi, náttúru og samfélag, “ segir Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra Rannsókna og nýsköpunar hjá OR.

OR hefur nú þegar kynnt hlutaðeigandi bæjar- og sveitarstjórum og landeigendum þá vindorkukosti sem eru til skoðunar. Verkefnið verður kynnt nánar næsta haust, m.a. í nágrannasveitarfélögum.