Mikill vöxtur ábyrgra fjárfestinga

27. jan 2020

Orkuveitan

Húsfyllir var á opnum morgunverðarfundi OR, Viðskiptafræðideildar HÍ og IcelandSIF um útgáfu grænna skuldabréfa í morgun.

Gríðarlegur vöxtur er í samfélagslega ábyrgum fjárfestingum um allan heim. Þetta kom fram í erindi dr. Ahmad A. Rahnema á morgunverðarfundi sem Orkuveita Reykjavíkur, Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og IcelandSIF gengust fyrir nú í morgun. Dr. Rahnema er einn fremsti sérfræðingur heims á sviði fjármögnunar fyrirtækja og prófessor við alþjóðlega viðskiptaháskólanna IESE í Barcelona.

Samfélagslega ábyrgar fjárfestingar geta verið í formi hlutafjár- eða skuldabréfakaupa. Græn skuldabréf – alþjóðlegir straumar var einmitt yfirskrift fundarins í morgun. Húsfyllir var í Nauthóli og stjórnendur hjá fjármálafyrirtækjum áberandi meðal fundarfólks.

Hraður vöxtur

Samkvæmt tölum sem dr. Rahnema kynnti á fundinum nam vöxtur samfélagslega ábyrgra fjárfestinga á einungis tveimur árum um helmingi í Kanada, þriðjungi í Bandaríkjunum, en hátt í fjórföldun í Ástralíu. Vöxturinn í Evrópu var minni en þar er talið að nú þegar sé meira en helmingur allra eignastýrðra fjárfestinga byggður á fleiri en fjárhagslegum sjónarmiðum. Árið 2016 var talið að um fjórðungur allra eigna í eignastýringu í veröldinni væri stýrt samkvæmt svokölluðum ESG-viðmiðum. Þá er ekki eingöngu horft til fjárhagslegra hliða fjárfestingarinnar, í hvaða formi sem hún er, heldur einnig til umhverfisþátta (E), samfélagsþátta (S) og stjórnhátta fyrirtækisins (G) sem fjárfest er í eða því lánað fé.

Sterkar vísbendingar um betri kjör

Orkuveita Reykjavíkur, sem var fyrsta íslenska fyrirtækið til að bjóða græn skuldabréf í opnu útboði hér á landi, hefur stuðst við alþjóðleg ESG-viðmið við árlega skýrslugjöf um árabil. Í máli Ingvars Stefánssonar og Drafnar Harðardóttur á fjármálasviði OR kom fram að sá bakgrunnur og reynsla við formlega skýrslugjöf um ófjárhagsleg málefni í rekstrinum sem OR býr að hafi nýst vel við undirbúning grænu skuldabréfanna. Þótt þau hafi ekki vilja fullyrða að fyrirtækinu hefðu boðist betri kjör við útboð á grænu skuldabréfunum en þeim hefðbundnu, sagði Ingvar á fundinum að sterkar vísbendingar væru í þá átt og sýndi tölur í því samhengi.

Upptaka af fundinum er öllum aðgengileg hér.

Dröfn Harðardóttir

Dröfn Harðardóttir

Ingvar Stefánsson

Ingvar Stefánsson

Fundargestir II

Fundargestir

Fundargestir I

Fundargestir