Helgi til liðs við OR samstæðuna og Kristrún í nýju hlutverki

20. des 2022

Orkuveitan
Helgi Héðinsson og Kristrún Dröfn Jóhannsdóttir
© Jóhanna Rakel

Helgi Héðinsson hefur tekið við sem mannauðsleiðtogi Veitna og verður jafnframt hluti af öflugu mannauðsteymi OR samstæðunnar. Starfið felur í sér að halda utan um öll mannauðsmál Veitna ásamt því að koma að mannauðstengdum verkefnum sem eru þvert á samstæðuna.

Helgi kemur frá Háskólanum í Reykjavík þar sem hann var forstöðumaður Opna háskólans, en þar áður var hann sálfræðingur og mannauðsráðgjafi hjá Líf og sál sálfræði- og ráðgjafastofu og þjónustaði þar m.a. OR og dótturfyrirtækin.

„Ég er afar lukkulegur með að vera orðinn hluti af mannauðssviði OR samstæðunnar. Við erum með afar metnaðarfulla mannauðsstefnu, ríka jafnréttismenningu og öflugt fræðslustarf. Ég er ótrúlega spenntur að takast á við þau verkefni sem bíða mín hjá Veitum og hjálpa til við að hlúa að og byggja upp öflugan mannauð sem nær árangri, enda mikil ábyrgð sem hvílir á Veitum við að byggja upp og viðhalda veitukerfi sem er grundvöllur lífsgæða hjá stórum hluta íbúa landsins,“ segir Helgi Héðinsson mannauðsleiðtogi Veitna.

Markmiðið að skapa eftirsóknarverðan vinnustað

Þá hefur Kristrún Dröfn Jóhannsdóttir tekið við starfi forstöðukonu innri þjónustu en hún hóf fyrst störf hjá OR árið 2012. Um er að ræða nýtt starf innan Mannauðs og menningar en helstu verkefni Kristrúnar snúa að launamálum, tækniþjónustu, þjónustuliðum og matstofu.

Kristrún starfaði í launamálum hjá Fjárvakri á árunum 2015-2018 áður en hún kom aftur til OR. Frá árinu 2020 hefur Kristrún verið yfir launamálum hjá samstæðunni. Þá hefur Kristrún setið í Jafnréttisnefnd OR og verið Persónuverndarfulltrúi Mannauðs- og menningar innan fyrirtækisins.

„Markmið okkar er að skapa eftirsóknarverðan vinnustað og stuðla að ánægju innri viðskiptavina okkar, starfsfólki OR samstæðunnar. Breytt skipulag býður upp á tækifæri til að endurskoða þjónustuloforðin okkar og bjóða upp á framúrskarandi vinnuumhverfi þar sem starfsfólk nær eftirtektarverðum árangri fyrir samfélagið,“ segir Kristrún Dröfn Jóhannsdóttir forstöðukona innri þjónustu.