Vaxtarsprotar OR hljóta Menntasprotann 2023

14. feb 2023

Orkuveitan
Erna Sigurðardóttir mannauðsleiðtogi hjá OR tekur við Menntasprotanum 2023.
© Einar Örn Jónsson

Orkuveita Reykjavíkur hlaut í morgun Menntasprotann árið 2023 fyrir verkefnið Vaxtarsprotar en verðlaunin voru afhent á Menntadegi atvinnulífsins sem haldinn var í Hörpu. Verkefnið sem er nýtt hjá OR og öllum dótturfélögum fyrirtækisins hefur það að markmiði að þróa vinnustaðina og breytta menningu til þess að takast betur á við síbreytilegt umhverfi og auknar kröfur og væntingar viðskiptavina.

Dótturfyrirtæki OR eru afar fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að vera innviðafyrirtæki með einum eða öðrum hætti. Þar er bæði verið að framleiða og selja orku, reka margar af mikilvægustu auðlindum landsins, byggju upp fjarskiptainnviði en einnig er lögð mikil áhersla á rannsóknir og nýsköpun á fjölbreyttum sviðum t.d. á sviði kolefnisföngunar og förgunar. Eitt af markmiðum verkefnisins er að nýta leiðtoga þvert á verkefni og vinnustöðvar sem hluta af lærdómsferli leiðtogans en um leið kynna vaxtarsprotana úti í fyrirtækjunum.

„Í nútíma samfélagi þar sem sífelldar breytingar eru veruleikinn er mikilvægt að vinna að stöðugri nýsköpun og framþróun í þjónustu við viðskiptavini. Með verkefninu Vaxtarsprotar setti OR á dagskrá þjálfun starfsfólks í nýrri færni og vexti þar sem sveigjanleiki er aukinn og hraðar er hægt að bregðast við áskorunum, óvæntum uppákomum en síðast en ekki síst nýjum tækifærum.“ segir Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir mannauðsstýra OR.

Skapar virði fyrir vinnustaðinn

Með vaxtarsprotanum fær starfsfólk OR þjálfun í því að draga fram sterkan umbótavilja og verkfæri til að hjálpa öðrum að vaxa og takast á við breytingar þar sem samskiptatæknin er lykill að árangri. Mikil ásókn er hjá starfsfólki að komast í þessa þjálfun sem stendur samanlagt í níu mánuði. OR leggur áhersla á að þjálfunin sé tengd við raunveruleg verkefni (e. learn by doing) og hefur þetta verkefni svo sannarlega hitt í mark og umsækjendur skipta tugum.

Það var Erna Sigurðardóttir mannauðsleiðtogi hjá OR sem tók við verðlaununum en það var forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sem tilkynnti um sigurvegarann.

„Það er krefjandi að breyta menningu og þróast sem vinnustaður og það er erfitt að þróast nema þú hlustir á fólkið þitt og kveikir neista hjá því að komast á nýjan stað. Þar hafa vaxtarsprotar okkar verið í lykilhlutverki sem kyndilberar nýrra tíma. Við lítum á vaxtarsprota verkefnið sem vegferð til framtíðar og til hagsbóta fyrir starfsfólkið, vinnustaðinn og síðast en ekki síst viðskipavini okkar,“ sagði Erna þegar hún tók við Menntasprotanum 2023.