Ný upplifun í náttúruparadís

8. des 2020

Orkuveitan

Á næsta ári verða liðin hundrað ár síðan rafstöðin í Elliðaárdal var vígð. Í tilefni þess ætlar OR að glæða dalinn enn frekara lífi með opnun sögu- og tæknisýningar undir merkjum Elliðaárstöðvar.

Torfan við Rafstöðvarveg fær þá nýtt hlutverk þar sem þessi merkilega saga okkar verður sögð með fjölbreyttri og fræðandi upplifun, bæði innan dyra og í ævintýralegu umhverfi dalsins.

Elliðaárdalurinn er eitt fjölsóttasta útivistarsvæði borgarinnar þar sem Orkuveita Reykjavíkur hefur gegnt lykilhlutverki í gegnum árin.

Það var sannkölluð bylting þegar rafstöðin var tekin í gagnið á sínum tíma og má segja að hún hafi lýst leiðina til framtíðar. Ekki aðeins með því að framleiða rafmagn heldur skapaði hún þekkingu og hugvit sem samfélagið býr enn að í dag. Með framsýni rafmagnsstjóra í skógræktarmálum var hrjóstrugum hólma breytt í gróið útivistarsvæði þar sem þrífst nú fjölbreytt plöntu- og fuglalíf.

Í Elliðaárstöð munu skólahópar, fjölskyldur, fróðleiksþyrstir og útivistarfólk geta kynnt sér vísindin og tæknina sem falin er í veggjum hvers heimilis á sama tíma og þau kynna sér hvernig veiturnar umbyltu lífsgæðum í Reykjavík.

Bjarni Bjarnason forstjóri OR segist hlakka mikið til að opna sýninguna. „Við segjum stundum að veiturnar okkar séu grunnur að lífsgæðum, sem íbúarnir búa við og byggja ofan á. Það er líka sameiginlegt veitunum að íbúarnir taka yfirleitt ekki eftir þjónustunni nema hún bregðist. Okkur langar að fræða fólk á öllum aldri, en ekki síst unga fólkið okkar, um það flókna veitukerfi sem sér húsunum og íbúunum fyrir þeirri grunnþjónustu sem við teljum nú sjálfsagðan hluta af daglegu lífi,“ segir Bjarni.

Það er hönnunarteymið Terta, sem sigraði opna samkeppni OR í upphafi síðasta árs sem hefur veg og vanda að hönnun sýningarinnar. Teymið skipa þau Magnea Guðmundsdóttir og Eva Huld Friðriksdóttir arkitektar, Brynhildur Pálsdóttir hönnuður, Ármann Agnarsson grafískur hönnuður og Atli Bollason verkefnastjóri.

Ítarlegri upplýsingar er að finna á heimasíðu verkefnisins www.ellidaarstod.is

Hér er kynningarblað um opnun Elliðaárstöðvar