ON býður götulýsingarþjónustu til sölu

12. sep 2022

Orkuveitan

Götulýsing Orku náttúrunnar er rekstrareining sem hefur þjónustað sveitarfélög, opinberar stofnanir og einkaaðila í áratugi. Mörg af stærstu sveitarfélögum landsins treysta á þjónustu Orku náttúrunnar sem hefur umsjón með framkvæmd og viðhaldi götulýsingar.

Götulýsing Orku náttúrunnar leitast eftir að veita afburðar þjónustu í viðhaldi götuljósa á öruggan, hagkvæman og umhverfisvænan hátt.

Til að nálgast frekari upplýsingar um söluferlið og gögn um rekstur götulýsingar ON eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við Deloitte ehf., ráðgjafa Orku náttúrunnar í söluferlinu, með tölvupósti á netfangið gotulysing@deloitte.is.

Frestur til að nálgast frekari gögn og upplýsingar um söluferlið er til og með 30. september 2022.