OR áfrýjar dómi í máli gegn Glitni

8. júl 2020

Orkuveitan

Orkuveita Reykjavíkur hefur falið lögmanni sínum að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag til Landsréttar þar sem fyrirtækinu er gert að greiða 740 milljónir króna auk dráttarvaxta vegna uppgjörs afleiðusamninga sem gerðir voru við Glitni á árunum fyrir hrun.

Dómurinn virðist ekki hafa tekið tillit til helstu sjónarmiða Orkuveitu Reykjavíkur í málinu. Þau eru annarsvegar að þrotabú Glitnis, sem stefndi OR, eigi ekki aðild að málinu þar sem slitastjórn bankans framseldi íslenska ríkinu kröfuna árið 2016. Þá var af hálfu OR lögð fyrir dóminn matsgerð þar sem niðurstaðan er sú að bankinn hafi í raun verið ógjaldfær þegar í janúar 2008 og samningarnir þá gjaldfallið.

OR hefur greint frá málaferlunum í ársreikningum fyrirtækisins og lagt til hliðar höfuðstól kröfu slitastjórnarinnar, 740 milljónir króna, sem varúðarfærslu. Dómsfjárhæðin kemur ekki til greiðslu fyrr en lokaniðurstaða dómstóla liggur fyrir, hvort sem það verður fyrir Landsrétti eða Hæstarétti.