Carbfix vinnur til alþjóðlegra jarðhitaverðlauna

29. maí 2020

Orkuveitan

Carbfix hefur unnið til Ruggero Bertani nýsköpunarverðlauna Evrópska jarðhitaráðsins en tilkynnt var um þetta á rafrænni verðlaunaafhendingu á vegum ráðsins í morgun.

Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum fyrir einstakt framlag sitt til jarðhitanýtingar, hvort sem um er að ræða vöruframboð, vísindarannsókn eða frumkvöðlaverkefni.

Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, var þakklát fyrir viðurkenninguna:

„Við erum stolt og þakklát fyrir að hafa hlotið þessa viðurkenningu. Verðlaunin endurspegla áhugann sem er á verkefninu, sem og trúna á að hægt sé að beita Carbfix aðferðinni til að draga úr gróðurhúsalofttegundum í andrúmsloftinu og þannig gegnt mikilvægu hlutverki í baráttunni gegn loftslagsvánni.“