Stjórn

Stjórnarmenn Orkuveitu Reykjavíkur eru kjörnir af sveitarstjórnum sveitarfélaganna þriggja sem eiga fyrirtækið.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur 2023.jpg

Fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórn OR eru Gylfi Magnússon, sem er formaður, Vala Valtýsdóttir, sem er varaformaður, Skúli Helgason, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir og Þórður Gunnarsson.

Varamenn eru Auður Hermannsdóttir, Sara Björg Sigurðardóttir, Páll Gestsson, Ragnheiður Björk Halldórsdóttir og Björn Gíslason.

Fulltrúi Akraneskaupstaðar er Valgarður Lyngdal Jónsson.

Áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar er Guðveig Lind Eyglóardóttir.

Áheyrnarfulltrúi Starfsmannafélags OR er Unnur Líndal Karlsdóttir.

Fundargerðir stjórnar

Starfsreglur stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur

Tvær nefndir starfa á vegum stjórnar OR:

Endurskoðunarnefnd

Endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar starfar fyrir Reykjavíkurborg og dótturfyrirtæki hennar. Nefndina skipa Lárus Finnbogason, löggiltur endurskoðandi, Sigrún Guðmundsdóttir, löggiltur endurskoðandi, Einar S. Hálfdánarson, lögmaður og löggiltur endurskoðandi og Sunna Jóhannsdóttir viðskiptafræðingur sem tilnefnd er af stjórn OR.

Starfskjaranefnd

Starfskjaranefnd skipa stjórnarmennirnir Vala Valtýsdóttir og Þórður Gunnarsson auk Drífu Sigurðardóttur.