Í samræmi við leiðbeiningar Sameinuðu þjóðanna og íslenskra stjórnvalda hefur OR forgangsraðað Heimsmarkmiðunum og leggur sérstaka áherslu á sex þeirra í starfsemi samstæðunnar.
Markmiðunum var raðað þannig að haldnar voru vinnustofur með ytri og innri hagsmunaaðilum þar sem þátttakendur röðuðu Heimsmarkmiðunum hvorttveggja eftir því hvar OR gæti haft jákvæð áhrif á framgang markmiðanna og hvar hætta kynni að vera á að starfsemin hindraði framganginn. Stjórn OR tók mið af niðurstöðu vinnustofanna og við samþykkt Sjálfbærnistefnu OR var ákveðið að áherslumarkmið samstæðu OR yrðu sex.
Reglubundin rýni stjórnar OR á öllum sameiginlegum stefnuskjölum samstæðunnar tekur mið af þessu.
Stjórnir allra fyrirtækjanna innan samstæðu OR hafa tekið afstöðu til Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna með tilliti til starfssviðs hvers fyrirtækis og undirmarkmiða hvers Heimsmarkmiðs.
5 Jafnrétti kynjanna
7 Sjálfbær orka
9 Nýsköpun og uppbygging
11 Sjálfbærar borgir og samfélög
12 Ábyrg neysla og framleiðsla
13 Aðgerðir í loftslagsmálum
3 Heilsa og vellíðan
5 Jafnrétti kynjanna
9 Nýsköpun og uppbygging
13 Aðgerðir í loftslagsmálum
17 Samvinna um markmiðin
5 Jafnrétti kynjanna
6 Hreint vatn og salernisaðstaða
7 Sjálfbær orka
9 Nýsköpun og uppbygging
11 Sjálfbærar borgir og samfélög
12 Ábyrg neysla og framleiðsla
13 Aðgerðir í loftslagsmálum
14 Líf í vatni
5 Jafnrétti kynjanna
9 Nýsköpun og uppbygging
11 Sjálfbærar borgir og samfélög
13 Aðgerðir í loftslagsmálum