Birting viðauka við grunnlýsingu

28. apr 2023

Orkuveitan
Ljósmynd: Atli Már Hafsteinsson

Orkuveita Reykjavíkur (OR; Reykjavík Energy) hefur birt viðauka við grunnlýsingu dagsetta 21. júlí 2021. Viðaukinn er staðfestur af Fjármálaeftirliti Seðlabanka ÍSlands og skoðast sem hluti af grunnlýsingunni.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá viðaukann við grunnlýsinguna staðfestan hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Viðaukinn er hér meðfylgjandi og verður einnig birtur á vefsíðu útgefanda, www.or.is . Grunnlýsinguna og viðaukann má nálgast á vefsíðunni á gildistíma grunnlýsingarinnar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins að Bæjarhálsi 1 í Reykjavík.