Umboð veitt til samninga við Sýn

14. des 2022

Orkuveitan
Ljósmynd: Atli Már Hafsteinsson

Á fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur í dag var forstjóra fyrirtækisins gefið umboð til þess að staðfesta ákvörðun stjórnar Ljósleiðarans um að ganga til samninga við Sýn um kaup á stofnneti félagsins. Viðræður standa yfir um kaupin og þjónustusamning milli fyrirtækjanna.

Á fundinum bókuðu Brynhildur Davíðsdóttir formaður, Gylfi Magnússon varaformaður og stjórnarmennirnir Valgarður Lyngdal Jónsson og Vala Valtýsdóttir auk áheyrnarfulltrúans Halldóru Lóu Þorvldsdóttur eftirfarandi:

  • Hlutverk stjórnar OR er að gæta hagsmuna Orkuveitu Reykjavíkur fyrir hönd eigenda sinna sem eru auk Reykjavíkurborgar, Akranes og Borgarbyggð. Það felur meðal annars í sér að verja og auka verðmæti eigna OR sem er einmitt það sem umræddir samningar við Sýn snúast um. Með ákvörðun stjórnar er verið að verja og auka verðmæti Ljósleiðarans, eins af dótturfélögum OR.
  • Við tökum alvarlega hlutverk okkar sem stjórnarfólks og ákvörðun um einstaka viðskiptasamninga er ekki í höndum eigenda OR, heldur stjórnar og hluthafafundar Ljósleiðarans. Það hefur verið staðfest af borgarlögmanni.
  • Fyrir liggur að meginþunginn í starfsemi Ljósleiðarans verður eftir sem áður á suðvesturhorni landsins og stærstur hluti fjárfestinga félagsins liggur þar. Í ljósi þess m.a. að helstu viðskiptavinir fyrirtækisins, þ.e. símafyrirtæki, eru með starfsemi um allt land er eðlilegt að Ljósleiðarinn styðji við starfsemi þeirra þar einnig, að því marki sem er hagfellt fyrir rekstur Ljósleiðarans. Stjórn OR og eigendur hafa verið upplýst um þessar áætlanir en Ljósleiðarinn hefur sjálfstæða stjórn og framkvæmdastjóra.