Útboð á grænum skuldabréfum 23. janúar

16. jan 2020

Orkuveitan

Fimmtudaginn 23. janúar 2020 verða boðin til sölu í lokuðu útboði skuldabréf í grænum skuldabréfaflokkum Orkuveitu Reykjavíkur, OR020934 GB og OR180255 GB.

  • OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2.september 2034.
  • OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055.

Áður hafa verið gefin út bréf í flokkunum að nafnvirði 2.700 m.kr. í OR020934 GB og að nafnvirði 10.231 m.kr. í OR0180255 GB

Útgáfa skuldabréfaflokkanna er í samræmi við áður samþykkta fjármögnunarheimild samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2020 sem nemur allt að 13,1 ma.kr.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Sustainable bond markaði Nasdaq á Íslandi.