Skuldabréfaútboð OR mánudaginn 22. maí

16. maí 2017

Orkuveitan

Mánudaginn 22. maí 2017 verða boðin til sölu ný skuldabréf í þremur neðangreindum flokkum Orkuveitu Reykjavíkur, sem allir hafa verið teknir til viðskipta hjá Nasdaq Iceland.

Flokkur OR090546:  Verðtryggð jafngreiðslubréf til 29 ára. Áður útgefin skuldabréf að nafnverði 8.531.724.833

Flokkur OR090524:  Verðtryggð jafngreiðslubréf til 7 ára. Áður útgefin skuldabréf að nafnverði 1.688.000.000 kr.

Flokkur OR011222:  Vaxtagreiðslubréf til 5 og hálfs árs. Áður útgefin skuldabréf að nafnverði 850.000.000 kr.

Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í hverjum flokki. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Tenglar á verðbréfagögn