Moody‘s hækkar lánshæfiseinkunn OR

5. sep 2016

Orkuveitan

Matsfyrirtækið Moody‘s hefur hækkað lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur í Ba2 með stöðugum horfum. Í rökstuðningi fyrirtækisins kemur fram að bætt einkunn endurspegli framfarir OR hvað varðar styrkari fjárhag þess og traustari lausafjárstöðu. Þetta gerist á sama tíma og efnahagsumhverfið á Íslandi og markaðsaðstæður hafi batnað. Jafnframt er tekið fram í viðhengdri tilkynningu Moody‘s að matsfyrirtækið eigi von á því að OR muni halda fjárhagslegum styrk sínum og góðri lausafjárstöðu.

Moodys Rating Action Sep 2016