Útboð á grænum skuldabréfum 17. apríl

10. apr 2024

Orkuveitan

Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 17. apríl 2024. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 22.482 m.kr. í flokknum.

OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 30.521 m.kr. í flokknum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 miðvikudaginn 17. apríl 2024. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 24. apríl 2024.