Stækkun á skuldabréfaflokki OR011222

13. des 2019

Orkuveitan

Orkuveita Reykjavíkur lauk í dag, 13. desember 2019, stækkun á skuldabréfaflokknum OR011222. Gefin voru út skuldabréf að nafnverði kr. 870 milljónir og seld á ávöxtunarkröfunni 4,76%.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi.