Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa

23. jan 2020

Orkuveitan

Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 23. janúar 2020. Gefin voru út skuldabéf í flokkunum OR 020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.

Heildartilboð í OR 020934 GB voru samtals 870 m. kr. á bilinu 1,68% - 1,78%. Tilboðum að fjárhæð 500 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,69%. Heildartilboð í OR180255 GB voru samtals 3.316 m. kr. á bilinu 1,75% - 1,82%. Tilboðum að fjárhæð 1.380 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,78%.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á „sustainable bond“ markaði Nasdaq á Íslandi.