Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa 17.mars

17. apr 2024

Orkuveitan

Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur (Orkuveitunnar) lauk í dag, 17. apríl 2024. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 22.482 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.980 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,95% - 4,08%. Tilboðum að fjárhæð 1.780 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,02%.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 30.521 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.315m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,40 - 3,52%. Tilboðum að fjárhæð 1.215 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,50%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.