Orkuveita Reykjavíkur endurfjármagnar eigendalán

7. júl 2020

Orkuveitan

Í samræmi við uppgreiðsluheimildir hefur OR óskað eftir að greiða upp víkjandi skuldabréf sem gefin voru út af eigendum félagsins árið 2011 á 4,5% vöxtum til 15 ára. Eftirstöðvar skuldabréfsins námu þann 1. júlí síðastliðinn um 5,9 ma. kr. og er uppgreiðslan áætluð innan árs 2020. Reykjavíkurborg hefur samþykkt uppgreiðslubeiðni og beðið er meðhöndlunar í byggðaráði Borgarbyggðar og bæjarráði Akraneskaupstaðar.