Niðurstaða skuldabréfaútboðs OR

22. maí 2017

Orkuveitan

Útboð á nýjum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fór fram 22. maí 2017 í umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion banka. OR ákvað að taka tilboðum í bréf að nafnverði 1.650 milljónum króna samtals og gefa út skuldabréf að nafnverði 1.250 m.kr. í flokki OR090546 á 3,14% ávöxtunarkröfu og að nafnverði 400 m.kr. í flokki OR090524 á 3,35% ávöxtunarkröfu.

Boðin voru verðtryggð jafngreiðslubréf til 29 ára í flokknum OR090546, verðtryggð jafngreiðslubréf til 7 ára í flokknum OR090524 og óverðtryggð vaxtagreiðslubréf til 5 og hálfs árs í flokknum OR011222. Tilboð bárust í bréf að nafnverði 1.950 m.kr. samtals, með ávöxtunarkröfu á bilinu 2,99-3,19% í verðtryggða OR090546 flokkinn og ávöxtunarkröfu 3,35% í verðtryggða OR090524 flokkinn.

Gjalddagi áskrifta, útgáfa og afhending bréfa er fyrirhuguð 26. maí 2017. Óskað verður eftir að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann dag. Áður hafa verið gefin út bréf í OR090546 að nafnverði 8.531.724.833 kr. og bréf í OR090524 að nafnverði 1.688.000.000 kr. Áður útgefin bréf í þessum flokkum hafa verið tekin til viðskipta.