Útboð OR á skuldabréfum 23. nóvember

16. nóv 2016

Orkuveitan

Miðvikudaginn 23. nóvember 2016 verða boðin til sölu ný skuldabréf í tveimur flokkum Orkuveitu Reykjavíkur. Annars vegar verða boðin verðtryggð jafngreiðslubréf til tæplega 30 ára í flokknum OR090546 en í þeim flokki hafa áður verið gefnar út 4.011.724.833 kr. skuldabréf. Hins vegar verða boðin vaxtagreiðslubréf til 6 ára í nýjum flokki OR011222.

Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í hverjum flokki. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum.

Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega næsta virka dag eftir útboð.