Skuldabréfaútboð OR 3. apríl

30. mar 2017

Orkuveitan

Mánudaginn 3. apríl 2017 verða boðin til sölu ný skuldabréf í þremur neðangreindum flokkum Orkuveitu Reykjavíkur, sem allir hafa verið teknir til viðskipta hjá Nasdaq Iceland.

Flokkur OR090546: Verðtryggð jafngreiðslubréf til ríflega 29 ára. Áður útgefin skuldabréf að nafnverði 6.511.724.833 kr.

Flokkur OR090524: Verðtryggð jafngreiðslubréf til ríflega 7 ára. Áður útgefin skuldabréf að nafnverði 1.688.000.000 kr.

Flokkur OR011222: Vaxtagreiðslubréf til tæplega 6 ára. Áður útgefin skuldabréf að nafnverði 850.000.000 kr.

Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í hverjum flokki. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.