Niðurstaða skuldabréfaútboðs OR 28.09.2017

4. okt 2017

Orkuveitan

Útboð á nýjum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fór fram 28. september 2017 í umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion banka. OR ákvað að taka tilboðum í bréf að nafnverði 500 milljónum króna og gefa út skuldabréf í flokki OR090546 á 3,04% ávöxtunarkröfu. Gjalddagi áskrifta, útgáfa og afhending bréfa eru fyrirhuguð 5. október 2017. Óskað verður eftir að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann dag. Áður hafa verið gefin út bréf í OR090546 að nafnverði 9.781.724.833 kr. og hafa þau verið tekin til viðskipta.

Boðin voru verðtryggð jafngreiðslubréf til tæpra 29 ára í flokknum OR090546, verðtryggð jafngreiðslubréf til tæpra 7 ára í flokknum OR090524 og óverðtryggð vaxtagreiðslubréf til 5 ára í flokknum OR011222. Tilboð bárust í bréf að nafnverði 1.500 m.kr. samtals, með ávöxtunarkröfu á bilinu 2,95-3,09% í OR090546 flokkinn, ávöxtunarkröfu 3,25-3,30% í OR090524 flokkinn og ávöxtunarkröfu 5,89% í OR011222 flokkinn.