Skuldabréfaútboð OR 21. ágúst

15. ágú 2018

Orkuveitan

Þriðjudaginn 21. ágúst 2018 verða boðin til sölu ný skuldabréf í tveimur neðangreindum flokkum Orkuveitu Reykjavíkur, sem báðir hafa verið teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Flokkur OR090546: Verðtryggð jafngreiðslubréf til tæpra 29 ára. Áður útgefin skuldabréf að nafnverði 17.941.243.199 kr.
Flokkur OR090524: Verðtryggð jafngreiðslubréf til tæpra 7 ára. Áður útgefin skuldabréf að nafnverði 4.178.000.000 kr.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á stjórnarfundi þann 18. desember 2017, heimild til fjármögnunar í formi lántöku eða útgáfu skuldabréfa og víxla á árinu 2018 sem nemur allt að 15 milljörðum króna.

Fossar markaðir hf. hafa umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í hverjum flokki. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.