Útboð á grænum skuldabréfum 20. júní 2023

14. jún 2023

Orkuveitan

Orkuveita Reykjavíkur efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 20. júní 2023. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2.september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 17.747 mkr. í flokknum.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 25.201 mkr. í flokknum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 20. júní 2023. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 28. júní 2023.