Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa 4.10.23

6. okt 2023

Orkuveitan

Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 4. október 2023. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 18.947 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 2.220 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 4,16% - 4,30%. Tilboðum að fjárhæð 2.180 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,27%.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 26.201 mkr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.080 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,77% - 3,85%. Tilboðum að fjárhæð 1.080 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,85%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Benedikt K. Magnússon, framkvæmdastjóri Fjármála OR,
sími: 516 6100, netfang: benediktk@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka,
sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is