Niðurstaða skuldabréfaútboðs OR

23. nóv 2016

Orkuveitan

Útboð á nýjum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur fór fram 23. nóvember 2016 í umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Boðin voru verðtryggð jafngreiðslubréf til tæplega 30 ára í flokknum OR090546 og óverðtryggð vaxtagreiðslubréf til 6 ára í nýjum flokki OR011222.

Orkuveita Reykjavíkur ákvað að taka tilboðum í bréf að nafnverði 1.950 m.kr. samtals og gefa út skuldabréf í flokki OR090546 að nafnverði 1.450 m.kr. á 3,39% ávöxtunarkröfu og í flokki OR011222 að nafnverði 500 m.kr. á 5,99% ávöxtunarkröfu. Tilboð bárust í bréf að nafnverði 2.960 m.kr. samtals, með ávöxtunarkröfu á bilinu 3,29-3,44% í verðtryggða flokkinn og ávöxtunarkröfu á bilinu 5,94-6,40% í óverðtryggða flokkinn.

Gjalddagi áskrifta, útgáfa og afhending bréfa er fyrirhuguð 1. desember 2016. Óskað verður eftir að hin nýju skuldabréf í báðum flokkum verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann dag, en fyrsti viðskiptadagur er tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara. Áður hafa verið gefin út bréf í OR090546 að nafnverði 4.011.724.833 kr. sem tekin hafa verið til viðskipta.