Breytingar á samningum um viðskiptavakt

30. jan 2023

Orkuveitan
Ljósmynd: Atli Már Hafsteinsson

Orkuveita Reykjavíkur hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Kviku banka hf. og Landsbankann hf. um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréf útgefin af OR með auðkennin „OR020934 GB“, „OR180255 GB“ og „OR180242 GB“. Skuldabréfin hafa þegar verið tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland. Skyldur viðskiptavaka samkvæmt samningi tóku gildi þann 27. janúar 2023.

Tilgangur þessa er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningurinn tekur til, auka seljanleika þeirra á eftirmarkaði og stuðla að eðlilegri verðmyndun.

Viðskiptavakar skuldbinda sig til að setja fram dag hvern, kaup- og sölutilboð í skuldabréfin í Kauphöllinni fyrir opnun markaðar. Tilboð skulu ávallt vera að lágmarki 20 m. kr. í hvorum flokki að nafnverði og skulu tilboð endurnýjuð eigi síðar en innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið.

Hámarksmunur kaup- og sölutilboða viðskiptavaka ákvarðast af verði gildra tilboða og má mest vera 1,0% á OR 020934 GB. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða á OR 180255 GB og OR 180242 GB má mest vera 1,5%.