Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

4. maí 2018

Orkuveitan

Þann 3. maí 2018, lauk Orkuveita Reykjavíkur útboði á nýjum skuldabréfum. Fossar Markaðir höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd OR. 

Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 1.300 m. kr. að nafnverði. 

Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 720 m. kr. á bilinu 2,80% - 2,86%. Öll í tilboð í flokkinn OR090546 voru samþykkt.

Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 580 m. kr. á bilinu 2,70% - 2,90%. Tilboðum að fjárhæð 280 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,82%. 

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 11. maí næstkomandi.