[Stefna yfirfarin og breytt á stjórnarfundi 24.04.2023]
Orkuveita Reykjavíkur lítur á meðhöndlun og varðveislu upplýsinga sem mikilvægan þátt í að styðja við ákvarðanatöku og framvindu ferla fyrirtækisins og nauðsynlegan þátt í virðiskeðju þess. Það er stefna OR í upplýsingaöryggi og persónuvernd að upplýsingar séu réttar, tiltækar og trúnaðar[1] gætt þar sem við á. Öll meðferð OR á persónuupplýsingum lýtur lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglum sem settar eru samkvæmt þeim.
Þetta gerir OR með því að:
Stefna um upplýsingaöryggi og persónuvernd byggir á gildum og heildarstefnu OR og er sett fram til samræmis við eigendastefnu fyrirtækisins.
Mælikvarðar:
Þátttaka í fræðslu um upplýsingaöryggi og persónuvernd
Uppitími lykilkerfa
Sannprófun afrita