[Stefna yfirfarin og samþykkt á stjórnarfundi 27.04.2020]
Stefna Orkuveitu Reykjavíkur er að mæta þörfum viðskiptavina með því að miðla vörum og góðri þjónustu með hagkvæmum og öruggum hætti.
Stöðugar umbætur, flæði ferla og lífsferilshugsun liggja til grundvallar í allri starfseminni. Lífsferilshugsun felur í sér að vinna með hliðsjón af öryggi, hagkvæmni á líftíma, vistspori og förgun.
Starfsfólk kemur fram af virðingu og jákvæðni við hvert annað, viðskiptavini og hagsmunaaðila.
Stjórnendur styðja starfsfólk til árangurs.
Gæðastefnan byggir á gildum og heildarstefnu OR og sett fram til samræmis við eigendastefnu.