Aðgangur að hreinu neysluvatni er ein verðmætasta auðlind fyrir íbúa og atvinnulíf.
Flestir líta á hreint neysluvatn sem sjálfsagðan þátt í daglegu lífi. Skortur á aðgengi að hreinu vatni getur haft alvarlegar afleiðingar og það er því óviðunandi að öryggi drykkjarvatns sé ógnað.
Sjálfbær nýting vatnsbóla felur í sér að komandi kynslóðir búi við sömu tækifæri og núlifandi kynslóðir til að nýta þau og að unnt sé að staðfesta að þannig sé að verki staðið. Vegna þeirrar ábyrgðar sem fyrirtækinu er falin mun OR standa vörð um vatnsbólin fyrir hættum og ágengni.
Elstu vatnsból OR eru Gvendarbrunnar í Heiðmörk. Þaðan var vatni fyrst veitt til bæjarins árið 1909 og enn þjóna Gvendarbrunnar borgarbúum.
Rekstur vatnsveitna er í höndum Veitna ohf., dótturfélags OR.