Gildi Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaganna eru þrjú og þau eiga að einkenna alla vinnu innan þeirra:
Framsýni snýr einkum að hlutverki OR þar sem veiturekstur er í eðli sínu viðfangsefni til afar langs tíma og þarfir íbúanna fyrir þjónustu veitufyrirtækja úreldast ekki.
Hagsýni er boðorð hagkvæms reksturs frá degi til dags þannig að viðskiptavinir fái skilgreinda þjónustu á sanngjörnu verði.
Heiðarleiki snýr að því hvernig starfsfólk kemur fram við viðskiptavini og hvert við annað, hvernig það starfar og tryggir gegnsæi í rekstrinum.