Útboð

Öll innkaupaferli Orkuveitunnar og dótturfélaga eru rafræn í gegnum útboðsvef Orkuveitunnar. Inni á vefnum er að finna lista yfir öll virk útboð hjá Orkuveitunni og dótturfélögum.

Þverskurður af hitaveituröri

Fara á útboðsvef Orkuveitunnar

Innleiðing á rafrænu útboðskerfi er liður í því að uppfylla lög og reglugerðir um rafræn samskipti og upplýsingagjöf í innkaupaferlum vegna opinbera innkaupa.

Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í innkaupaferlum eru hvött til að skrá sig á útboðsvefinn.

Leiðbeiningar vegna nýskráningar á útboðsvef Orkuveitunnar.pdf

Við mælum með að bjóðendur kynni sér vefinn og undirbúi afhendingu fyrirspurna og skil á tilboðum með góðum fyrirvara. Starfsfólk Innkaupa Orkuveitunnar leitast við að aðstoða bjóðendur við notkun á útboðsvefnum enda berist ósk þar um með hæfilegum fyrirvara, eigi síðar en einum virkum degi fyrir viðkomandi tímafrest.

Senda póst til Innkaupa Orkuveitunnar