Um OR

Orkuveitan er hátæknifyrirtæki sem sér rúmlega helmingi þjóðarinnar fyrir húshitun með jarðvarma, drykkjarvatni, rafmagni og fráveitu. Við byggjum okkar starf á vísindalegri þekkingu og mikilli reynslu við úrlausn verkefna á sviði verkfræði, jarðfræði, verkefnisstjórnun og umfangsmikilli tækniþekkingu við öflun og dreifingu á orku og vatni á þann hátt að telst til eðlilegra lífsgæða.