Öskjuhlíð

Öskjuhlíðin hefur fest sig í sessi sem eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykvíkinga. Í Öskjuhlíð er net hjóla- og göngustíga og þá hefur skógrækt verið sinnt af kappi, en þar hafa tæplega 200.000 tré verið gróðursett. Þar eru einnig merkilegar jarðfræðilegar og sögulegar minjar. Veitinga- og útsýnisstaðurinn Perlan er samgróinn ímynd borgarinnar.
Hitaveitutankarnir voru reistir árið 1940 gegndu lykilhlutverki í að miðla heitu vatni til Reykvíkinga. Í Öskjuhlíð er hverinn Strókur sem útbúinn var til skemmtunar og fræðslu um virkni goshvera. Hann gýs alla daga milli kl. 13:00 og 17:00 frá 15. maí til 15. september, nema í verulega hvössum suðlægum áttum, svo að strókurinn berist ekki á Perluna.