Nesjavellir

Nesjavellir eru um 30 kílómetra austur af Reykjavík, skammt frá Þingvöllum.  Jarðvarmavirkjun á Nesjavöllum framleiðir rafmagn og heitt vatn fyrir höfuðborgarbúa.  OR hefur unnið að uppgræðslu rofabarða og plöntun skógarplantna í landi Nesjavalla síðastliðin 20 ár.  Rúmlega hálfri milljón skógarplantna af ýmsum tegundum hefur verið plantað á jörðum OR og Reykjavíkurborgar í landi Nesjavalla og Grafningi.  Í gegnum árin hafa þúsundir skólanema haft sumarvinnu af landgræðslu og í kjölfarið hefur aðstaða til útivistar á Nesjavöllum stórbatnað.  

Gestamóttaka Nesjavallavirkjunar er lokuð.