Hengilssvæðið

Hengilssvæðið er háhitasvæði u.þ.b. 20 kílómetra suðaustur af Reykjavík.  Svæðið er að mestu opið almenningi, en vegarslóðar geta verið lokaðir tímabundið vegna framkvæmda við Hellisheiðarvirkjun.  Á ári hverju stunda tugþúsundir íslendinga útivist á Hengilssvæðinu en þar eru gönguleiðir alls um 125 km að lengd.  Víðsvegar á svæðinu er skilti sem vísa á náttúru- og menningarminjar. 

Göngukort Hengilssvæðis (1,59Mb) er til sölu í Hellisheiðarvirkjun.  Hengilssvæðið er á virku gosbelti.  Þar er að finna heita hveri, hraungíga, ár og vötn og gróðursæla bletti.  Orkuveitan rekur tvær jarðvarmavirkjanir á Hengilssvæðinu, Nesjavallavirkjun  og Hellisheiðarvirkjun.

Gestamóttaka í Hellisheiðarvirkjun er opin allan ársins hring.  Á fræðsluvef OR eru ítarlegar upplýsingar um Hengilinn.  Við bendum líka á skemmtilegan vef um svæðið þar sem einnig er að finna miklar upplýsingar.

Nánar um Nesjavallavirkjun á fræðsluvef OR