Heiðmörk

Heiðmörk er hluti vatnsverndarsvæðis höfuðborgarsvæðisins. Þar eru Gvendarbrunnar og önnur vatnstökusvæði OR. Í Heiðmörk er fjölbreytni hvað varðar landslag og gróður, enda hefur
Skógræktarfélag Reykjavíkur unnið þar gott verk í samstarfi við Orkuveituna. Víða má finna skjólgóðar lautir og vöxtulega lundi sem gestir og gangandi geta notið.
Fjölbreytt fuglalíf er á svæðinu, einkum á það við svæðið kringum Elliðavatn og Myllulækjartjörn. Í Heiðmörk er gott berjaland og uppskera sveppa hefur margfaldast með tilkomu skógarins. Um Heiðmörk hafa verið lagðir göngustígar sem eru einnig skíðagöngubrautir á veturna.