Elliðaárdalur

Elliðaárdalurinn er eitt fjölsóttasta útivistarsvæði Reykvíkinga enda býður hann upp á fjölbreytta möguleika til útivistar. Í Elliðaárdal eru stígar og brautir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem og fræðsluskilti um jarðfræði og gróður dalsins.
Jarðfræði Elliðaárdals er einstök vegna margbreytileika síns. Við Elliðaárósa eru merkileg setlög, kölluð Elliðavogslögin og má þar finna leifar ýmissa plantna sem uxu við Elliðavog fyrir nokkur hundruð þúsund árum og skeljar af grunnsævi. Það má einnig finna jökulrákaðar grágrýtisklappir, hraun frá nútíma og sjávarhjalla. Elliðaárnar hafa oft verið nefndar perla Reykjavíkur, enda einstakt að laxveiðiá renni í gegnum höfuðborg.
Reykjavíkurborg keypti Elliðaárnar árið 1906 til beislunar vatnsafls en Elliðaárstöð hefur framleitt rafmagn frá árinu 1906. Um það leyti hefur líklega hafist trjárækt í Elliðaárdalnum og uppgræðslu verið haldið áfram sleitulaust síðan.
Á fræðsluvef OR eru frekari upplýsingar um Elliðaárdal, m.a. sögu, jarðfræði, veiði og gömlu rafstöðina.