Umhverfismál

Lækur og steinarOrkuveitu Reykjavíkur starfar eftir vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi og umhverfisstefnu.  Umhverfisskýrsla kemur út árlega og þar er m.a. gerð grein fyrir losun gróðurhúsalofttegunda í rekstri fyrirtækisins, sem og öðrum þáttum sem orkuvinnsla hefur í för með sér. Árið 2004 hlaut OR Kuðunginn, umhverfisverðlaun Umhverfisráðuneytisins. 

Orkuöflun fyrirtækisins er framlag til minni gróðurhúsaáhrifa, við höldum skilvirkt grænt bókhald og leggjum okkar að mörkum til bættrar umgengni við náttúruna.