Uppgræðsla á Hellisheiði
Frá árinu 2007 hafa sumarstarfsmenn hjá Orkuveitu Reykjavíkur unnið að ýmsum umhverfisverkum á Hellisheiði í tengslum við framkvæmdir á svæðinu. Unnið hefur verið að uppgræðslu, ruslatínslu og landslagsmótun. Uppgræðslan hefur heppnast vel og hefur tekist að græða upp áður örfoka land.
Markmið uppgræðslunnar er að loka rofabörðum og rofnum svæðum og nota til þess innlendar grastegundir og tegundir sem eru lágvaxnar og lítt áberandi í landslaginu. Áburðarmagni er stillt í hóf þannig að með tímanum taki staðargróður sér bólfestu í svæðunum, en markmiðið er að þau falli vel að landslaginu í framtíðinni.
Á myndunum hér að neðan má sjá nokkur svæði á Hellisheiði þar sem árangurinn er greinilegur.
Smelltu á myndir til að stækka