Umhverfismál

Orkuveita Reykjavíkur hefur í mörg ár unnið markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum í starfsemi sinni og er mikil áhersla lögð á umhverfismál. Daglegur rekstur og verk eru unnin í takt við vottað umhverfisstjórnunarkerfi.
Umhverfisskýrsla kemur út árlega og þar er m.a. gerð grein fyrir losun gróðurhúsalofttegunda í rekstri fyrirtækisins, sem og öðrum þáttum sem orkuvinnsla hefur í för með sér. Árið 2004 hlaut OR
Kuðunginn, umhverfisverðlaun Umhverfisráðuneytisins.
Umhverfisstefna fyrirtækisins er virk og rædd á sérstökum námskeiðum sem allir starfsmenn sækja. Öll orkuöflun fyrirtækisins er framlag til minni gróðurhúsaáhrifa, við höldum skilvirkt grænt bókhald og leggjum okkar að mörkum til bættrar umgengni við náttúruna. Má þar nefna þátttöku Orkuveitu Reykjavíkur í
Nýorku, - verkefni um vetnisframleiðslu og notkun hér á landi,
framleiðslu metangass í Álfsnesi og notkun á því og athuganir á frekari rafvæðingu samgöngutækja. Þá hefur Orkuveita Reykjavíkur sett sér þau markmið að 55% bílaflota fyrirtækisins verði vistvænni þegar árið 2010.
Á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur þann 30. ágúst 2006 var forstjóra falið að endurskoða stefnu Orkuveitunnar til að undirstrika mikilvægi umhverfismála í starfi veitunnar. Þá var samþykkt að OR muni efla frumkvæði sitt í notkun vistvænna farartækja, metan-, vetnis- og rafknúinna, með því að auka hlut þeirra í ökutækja- og vinnuvélaflota fyrirtækisins.
Orkuveita Reykjavíkur hefur undanfarin notað bíla sem ganga fyrir vistvænu eldsneyti. Um er að ræða rafbíla og metangasbíla, en fyrirtækið hefur verið í samstarfi við Metan hf. um notkun metans á bíla. Þá er fyrirtækið aðili að Íslenskri Nýorku, sem vinnur að undirbúningi vetnissamfélags á Íslandi.
Nú þegar eru fáanleg vistvæn ökutæki sem uppfylla að öllu eða verulegu leyti kröfur fyrirtækisins í mörgum tilfellum.
Orkuveita Reykjavikur stefnir því að eftirfarandi:
1. Til framtíðar muni Orkuveita Reykjavíkur fyrst og fremst nota vistvæn farartæki í bílaflota sinn og vinnuvélar knúnar vistvænum orkugjöfum.
2. Við endurnýjun bíla- og vélaflota Orkuveitunnar á næstu 10 árum verði almennt keyptar vistvænar útfærslur á bílum- og tækjum þar sem það hentar og er til á markaðnum.
3. Markmiðið er að samsetning bílaflota og vinnuvéla Orkuveitunnar verði þannig að:
a. í lok árs 2007 verði 10% með vistvænum orkugjöfum
b. í lok árs 2008 verði 20% með vistvænum orkugjöfum
c. í lok árs 2009 verði 30% með vistvænum orkugjöfum
d. í lok árs 2010 verði 40% með vistvænum orkugjöfum
e. í lok árs 2011 verði 45% með vistvænum orkugjöfum
f. í lok árs 2012 verði 50% með vistvænum orkugjöfum
g. í lok árs 2013 verði 55% með vistvænum orkugjöfum
Orkuveita Reykjavikur mun styðja við verkefni sem stuðla almennt að aukinni notkun vistvænna ökutækja og taka þátt tilraunum með nýjar tegundir vistvænna ökutækja, svo sem metan-, vetnis-, etanól-og rafgeymabíla og vinnuvélar o.fl.
Mesta umhverfisbótaverkefni sem ráðist hefur verið í hér á landi og tók 25 ár var uppbygging fráveitumannvirkja í Reykjavík og hreinsun strandlengjunnar. Mjög fullkomið kerfi hreinsistöðva er tengt um 800 km. lagnakerfi og hreinsuðum vökva er dælt í sjó fram.
Umhverfið á Fræðsluvef