Loftgæðamælingar
Heilbrigðiseftirlit á Suður- og Vesturlandi fylgjast með loftgæðum á starfssvæðum sínum, m.a. með sjálfvirkum mælingum. Orkuveita Reykjavíkur tekur þátt í þessari vöktun loftgæða, sérstaklega m.t.t. magns brennisteinsvetnis í andrúmslofti. Brennisteinsvetni (H2S) er náttúruleg gastegund sem fyrirfinnst víða á svæðum þar sem jarðhiti eða eldvirkni eru á yfirborði eða við það. Mannsnefið er næmt fyrir brennisteinsvetni og nemur auðveldlega brennisteinsvetni niður í 15 míkrógrömm efnisins í hverjum rúmmetra andrúmslofts. 15 míkrógrömm eru 15 milljónustu úr grammi.
Alþjóða heilbrigðisstofnunin hefur sett viðmiðunarmörk fyrir almenn loftgæði og eru þau 150 míkrógrömm á rúmmetra að meðaltali í einn sólarhring.
Skv. reglugerð frá Umhverfisráðuneytinu er meðaltalsgildi 50 míkrógrömm á rúmmetra að meðaltali yfir sólarhring.
Hér að neðan eru slóðir á niðurstöður sjálfvirkra mælinga. Athugið að um er að ræða óyfirfarnar frumniðurstöður. Á sumum síðnanna má sjá niðurstöður mælinga á fjölda loftgæðaþátta, s.s. svifryks. Ath. að síður gætu birst illa í eldri útgáfum af Internet Explorer vafranum.
Mælistöð við Hellisheiðarvirkjun
Mælistöð í Norðlingaholti
Mælistöð í Hveragerði
Loftgæðamælingar Reykjavíkurborgar (Grensás, Laugardalur og færanleg stöð)
Loftgæðamælingar Heilbrigðiseftirlits Kópavogs og Hafnarfjarðarsvæðis