Fræðsla
Árlega heimsækja 500 þúsund manns starfsstöðvar OR. Þyngst vegur þar fjöldi gesta í Perluna, en einnig á Nesjavelli, í Hellisheiðarvirkjun og í höfuðstöðvar okkar á Bæjarhálsi. Við kappkostum að fræða gesti okkar um einstaka orkuvinnslu og vísindin sem liggja á bakvið, sem talin er til eftirbreytni fyrir aðrar þjóðir heims.
Umhverfis- og orkurannsóknarsjóður Orkuveitu Reykjavíkur sem stofnaður hefur verið í samstarfi við alla háskóla á athafnasvæði fyrirtækisins er gott dæmi um virka þátttöku okkar í menningar- og menntunarmálum. Til sjóðsins eru lagðar verulega fjárupphæðir og á hann að hvetja til nýrra verkefna á sviði orku og umhverfis.
Við veitum auk þess margvíslega styrki til menntunar- og menningarmála, sérstaka styrki til kvenna í námi í iðn- og raungreinum, tökum þátt í Menningarnótt í Reykjavík með eftirminnilegum hætti ár hvert, sem og Vetrarhátíð og rekum Minjasafn Orkuveitunnar og Rafheima, - fræðslusetur fyrir grunnskólabörn.
Fræðsluvefur Orkuveitu Reykjavíkur um orku – og umhverfismál er metnaðarfullt samstarfsverkefni okkar með Menntasviði Reykjavíkurborgar. Einnig tökum við virkan þátt í menningarlífi með sýningum og uppákomum í sýningarsalnum 100°, á Bæjarhálsi sem hefur unnið sér fastan sess í menningarlífi borgarinnar.
Hér á vefnum er hægt að nálgast margvíslegt efni um starfsemina, m.a. lykilupplýsingar um jarðvarmavirkjanir, rétta notkun á afurðum okkar, og skyggnast aðeins inní sögu orkuvinnslu. Á fræðsluvefnum gerum við starfseminni ítarleg skil í máli og myndum. Á hverju sumri stendur OR fyrir fræðslugöngum, sem farnar eru undir stjórn þekktra vísindamanna um Elliðaárdalinn og Hengilssvæðið.
Ef þú hefur áhuga á að koma í heimsókn til okkar, sendu okkur línu.