Arthur Ganson - Machines
Úrval af hreyfiskúlptúrum bandaríska listamannsins Arthur Ganson Machines voru til sýnis í anddyri höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi.
Ásdís Spano
Við fyrstu sýn dettur áhorfandanum í hug að Ásdís Spano hafi haft gufuhveri að fyrirmyndum við gerð málverka sinna, orku þeirra og þann samruna jarðar, vatns og lofts sem þar á sér stað.
Ásdís Spano - Rof
Sýn Ásdísar Spano til viðfangsefna sinna hefur færst frá því sem var. Tengslin við verk fortíðarinnar eru ljós og órofin, en umbrotin eru óumdeilanleg og hreyfingin æpandi, nánast ofsafengin.
Break The Ice
Verkefnið Break The Ice hafði það að markmiði að leiða saman sviðslist og myndlist og hófst verkefnið á allsherjar listamannafundi í maí 2005. Þar mættust 50 Norrænir sviðs- og myndlistamenn á málþingi um samgang listformanna og aðferðir.
Cube
Margmiðlunarlistamennirnir Holger Mader, Alexander Stublic og arkitektinn Heike Wiermann nota hið óljósa svæði milli raunveruleika og eftirlíkingar til að rannsaka skynjun á opinberum stöðum. Þau nota miðla sem bundnir eru við tíma eins og ljós, myndbönd og hljóð. " twists and turns ", listrænt myndband sem sýnt hefur verið íá Uniqa turninum í Vín síðan 2006, " reprojected " á skjáunum sjö í Munchen 2006/07, " inner city waltz ", á SPOTS Innsetningunni í Berlín 2007 og " facade " sem áætlað er að sýna á Íslandi 2009.
Dieter Roth
Fyrstu árin á Íslandi vann Dieter ýmis hönnunarstörf, auglýsingateiknun, skrúðgarðagerð, módelsmíð fyrir arkitekta og skartgripa og leirmunahönnun. En ávalt gaf hann sér þó tíma fyrir eigin myndlist.
Eysteinn
"Eysteinn sýnir fjórar innsetningar sem allar eru tengdar ljóðum, umfjöllunarefni þeirra er í grófum dráttum lífshlaup mannsins, æskan, nýting hæfileikanna, hugarfjötrar og valfrelsi, og loks á heimspekilegri nótum, einstaklingurinn í stærra samhengi, hvernig bregst hann við gagnvart öflum sem eru honum um megn, stríði, hörmungum, dauðanum?"
Fimm
Sýningin "Fimm" var opnunarsýning í Gallerí 100°. Þar sýndu listamennirnir Finnbogi Pétursson, Hreinn Friðfinnsson, Kristján Guðmyndsson, Svava Björnsdóttir og Þór Vigfússon.
Finnbogi Pétursson
Vatnstankar við Háteigsveg - Innsetning. Finnbogi Pétursson vinnur verk sín úr hljóðkjörnum, einkum stökum, síendurteknum tónum.
Finnbogi Pétursson - Teslatune
"Finnbogi er í fremstu röð íslenskra myndlistarmanna, hann hefur sýnt verk sín vítt og breitt um heiminn." (úr sýningarskrá)
Gloss
15. feb.- 23. mars 2005 var haldin sýning á verkum í eigu Listasafns Íslands og nefndist sýningin GLOSS.
Grasrót # 5
Grasrót # 5, sýning þrettán ungra listamanna, var samstarf Orkuveitunnar og Nýlistasafnsins og fór fram fer í húsakynnum beggja aðila á sama tíma, ásamt því að listamenn Grasrótar stóðu fyrir málþingi um samtímalist í fyrirlestrarsal Orkuveitunnar á sýningartímabilinu
Guðmundur Karl Ásbjörnsson
Sýning Guðmundar Karls Ásbjörnssonar 2006 auk mynda frá opnun.
Gæðingarnir
Sýningin "Gæðingarnir" með undirtitlinum "í þeirri röð sem þeir birtast...." var haldin í Nýlistasafninu (12. maí til 4. júní) og 100° sýningarsal Orkuveitu Reykjavíkur 12. maí til 1. júlí, 2006 í samstarfi við Listahátið í Reykjavík og Glitni.
Helena
Helena Jónsdóttir hefur á skömmum tíma skipað sér í fremstu röð dansstuttmyndahöfunda í Evrópu og hafa verk hennar verið sýnd á dans- og kvikmyndahátíðum um allan heim.
Hengillinn
Sýning helguð Hengilssvæðinu.
Hugmyndasmiðjan
Árleg vinnustofa Hugmyndasmiðjunnar í skapandi námi fyrir börn á grunnskólaaldri var haldin í þriðja sinn í 100° vikuna 30. apríl til 4. maí 2007.
Hönnunarsamkeppni um ljósker
Sýning á tillögum í hönnunarsamkeppni um ljósker sem Ljóstæknifélag Íslands, Tímaritið Ljós og Orkuveita Reykjavíkur stóðu fyrir sýningunni.
Menning eftir menningarnótt
Mats Wibe Lund ljósmyndari hélt sýninguna AUGNAGAMAN, aðallega myndir af hversdagslífinu hér áður fyrr þ.e. frá 1956 og fram til 1974.
Orgel lita, gufu og tóna
Listahópurinn Norðan Bál átti vinningstillöguna í samkeppni, sem Orkuveita Reykjavíkur stóð fyrir, um útilistaverk við Hellisheiðarvirkjun.
Orkan og lífið / Blástur
Meginþema sýningar Einars Marínós Magnússonar "Orkan og lífið" er orkan í allri sinni mynd, ekki síst með skírskotun til æviferils listamannsins, starfa við beislun heita vatnsins og upplifun náttúrunnar við sjávarströndina. Í ljósmyndum Bryndísar Jónsdóttir af nýjum glerverkum sínum á sýningunni "Blástur" teflir hún þeim fram í samhengi við íslenska náttúru, grjót, sanda og læki.
Samtímalist frá Króatíu
Fimm króatískir listamenn eru kynntir til sögunnar með vídeóinnsetningum, ljósmyndum og gjörningum og verkin eiga það sameiginlegt að ráðast gegn þeirri staðalímynd fyrirheitna landsins sem tengd er ferðamannastöðum en miðla um leið sláandi sýn listamannanna á veruleika hins eiginlega tíma og staðsetningar.
Site Ations Sense in Place - Orka
Alþjóðverkefnið Site Ations Sense in Place var á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2006.
Skapandi hugsun
Málþing um skapandi hugsun var lokapunktur á vikulangri dagskrá Hugmyndasmiðjunnar, þar sem fjörutíu grunnskólabörnum var boðið á námskeið eftir skólatíma.
Straumar
"Í gegnum æðakerfi landsins hríslast sögur sem verða að nýjum sögum við ósana þar sem straumarnir snúast og mynda straumhvörf." Straumar er samsýning Guðbjargar Lindar, Guðrúnar Kristjánsdóttur og Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá.
SwanHildur
Sýning SwanHildar - Birting orkunnar.
The Water People
Sýning Brian Griffin á ljósmyndum sem eru byggðar á sögu hans, "The Water People" eða "Vatnsfólkið".
Vegir Kiarostamis
Ljósmyndasýning eftir Kiarostami hefur verið á ferðalagi um heiminn í nokkurn tíma og kom hingað til lands í tengslum við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík. Um er að ræða tvær myndasyrpur, önnur ber heitið Vegir Kiarostamis en hin er ónefnd.
Verk í eigu OR
Sýning á verkum í eigu Orkuveitu Reykjavíkur.
WA - Tímabundið yfirborðssjálfstæði
Undanfarin ár hafa málverk og teikningar tekið á sig nýjar myndir. Listamenn hafa kosið að hverfa frá hefðinni með því að vinna verk sín beint á fletina, á vegg, á loft, á jörð eða jafnvel í þrívíð rými.