Fræðslugöngur

Á hverju sumri stendur Orkuveita Reykjavíkur fyrir fræðslugöngum, en þær má rekja aftur til menningarársins 2000. Markmið þeirra er að bjóða almenningi vandaða leiðsögn um útivistarsvæði, sem Orkuveita Reykjavíkur starfar á, svo sem Elliðaárdalinn, allt frá ósum upp að Gvendarbrunnum, og Hengilssvæðið.

Fræðslugöngur 2010: 

25. maí                Fuglar í Elliðaárdal
1. júní                 Skordýr í Elliðaárdal
8. júní                 Ganga um Hengilssvæðið I
15. júní               Sögur og sagnir í Elliðaárdal I
20. júní               Miðnæturganga á Hengilinn
22. júní               Íslenska flóran í Elliðaárdal
29. júní               Sögur og sagnir í Elliðaárdal II
6. júlí                  Ganga á Nesjavöllum I - vestari hluti fræðslustígs
13. júlí                Elliðaár, örnefni og veiði
20. júlí                Jarðfræði í Elliðaárdal
27. júlí                Ganga um Hengilssvæðið II
2. ágúst              Engidalur - Marardalur

7. ágúst              Elliðaárdalur - Gvendarbrunnar
10. ágúst            Ganga á Nesjavöllum II

17. ágúst Söguganga í Laugardal
Árið 1930 var heitu vatni dælt úr Laugunum til Reykjavíkur í fyrsta sinn og markar það upphaf hitaveitu. Gengið verður um orkusöguslóðir: Laugardalur-Bolholt-Fúlatjörn. Gangan hefst þriðjudaginn 17. ágúst við Þvottalaugarnar kl. 19:30. Leiðsögumaður er Stefán Pálsson, sagnfræðingur.

21. ágúst Hellisheiðarvirkjun - Nesjavallavirkjun
Laugardaginn 21. ágúst verður farin gönguferð frá Hellisheiðarvirkjun og til Nesjavallavirkjunar. Gengið verður upp Sleggjubeinsskarð og upp á Vörðuskeggja sem er 805 metra hár. Þaðan verður farið niður í Kýrdal og í Nesjavallavirkjun. Gangan tekur u.þ.b. 6 klst. og er frekar erfið, að jafnaði um brattar fjallshlíðar. Nauðsynlegur búnaður eru góðir gönguskór, góðurhlífðarfatnaður og nesti. Orkuveita Reykjavíkur leggur til ferðir frá Reykjavík í Hellisheiðarvirkjun og til baka frá Nesjavallavirkjun og er mæting í höfuðstöðvar Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1 kl. 10:00. Áætlaður komutími til baka er kl. 18:00. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Leiðsögumaður er Hans Benjamínsson, kynningarfulltrúi Hellisheiðarvirkjunar.

24. ágúst Gönguferð um Öskjuhlíðina
Þriðjudagskvöldið 24. ágúst verður gengið um Öskjuhlíðina undir leiðsögn Einars Gunnlaugssonar, jarðfræðings, og Stefáns Pálssonar, sagnfræðings. Öskjuhlíðin er forvitnilegt svæði bæði út frá náttúrufræðilegu og sögulegu sjónarhorni, auk þess sem starfsemi Orkuveitunnar tengist svæðinu á ýmsan hátt. Lagt verður af stað frá Perlunni kl. 19:30.

Athugið að efni dagsins getur riðlast af ýmsum ástæðum og er því bent á að upplýsingar verða uppfærðar hér á vefnum.