Vísindaráð
Vísindaráð skal vinna sameiginlega að tilgangi og markmiði CarbFix verkefnisins. Vísindaráðið ber ábyrgð á því að hafa yfirsýn og samræma þau verkefni sem samstarfsaðilar vinna að ásamt því að hlúa að samvinnu milli þessara aðila. Ennfremur skal vísindaráðið fylgjast með framvindu verkefnisins, taka á málum eftir því sem við á og velja rannsóknarverkefni sem verða fjármögnuð úr almennum sjóðum CarbFix verkefnisins. Fulltrúar í vísindaráðinu bera ábyrgð á því að afla allrar þeirrar sérfræðiþekkingar sem þörf er á og er ekki að finna hjá meðlimum ráðsins.
Fjórir aðilar sitja í vísindaráði og hefur hver samstarfsaðili rétt á að tilnefna einn meðlim í ráðið og annan til vara en þessir aðilar sitja í ráðinu til tveggja ára. Fulltrúi tilnefndur af Háskóla Íslands er formaður vísindaráðsins. Vísindaráðið tilnefnir tvo fulltrúa í framkvæmdaráð verkefnisins.
|
Sigurður Reynir Gíslason (Chairman)
Vísindamaður - Jarðefnafræði
Jarðvísindastofnun Háskólans
sigrg (hjá) raunvis.hi.is
Nánari upplýsingar
|
|
Wallace S. Broecker
Newberry prófessor - Jarð- og umhverfisvísindi
Jarðvísindastofnun Columbia háskóla
broecker (hjá) ldeo.columbia.edu
Nánari upplýsingar
Viðurkenningar
Rit
Umfjöllun
|
|
Eric H. Oelkers
Yfirmaður rannsókna - Efnafræði og jarðvísindi
Rannsóknaráð Frakklands í Toulouse - Université Paul Sabatier
oelkers (hjá) lmt.obs-mip.fr
Nánari upplýsingar
|
|
Einar Gunnlaugsson
Yfirmaður rannsókna - Efnafræði og jarðvísindi
Orkuveita Reykjavíkur
einar.gunnlaugsson (hjá) or.is
|
| |
|