Samstarfsaðilar

Háskóli Íslands - Jarðvísindastofnun

Háskóli Íslands er traustur og viðurkenndur rannsóknaháskóli í hinu alþjóðlega vísindasamfélagi og vinnur markvisst að því að efla samkeppnishæfni Íslands í vísindum, atvinnuþróun og menningu í þekkingarsamfélagi nútímans. Markmið Jarðvísindastofnunar háskólans er að vera metnaðarfull alþjóðleg rannsóknastofnun á sviði jarðvísinda, sem endurspegli hina einstöku jarðfræði Íslands og þá þekkingu í jarðvísindum sem byggst hefur upp á Íslandi.

Nánar

 

Columbia háskóli - Jarðvísindastofnun

Við Kólumbía háskóla starfar fjöldi vísindamanna og nemenda við 20 rannsóknarstofnanir. Jarðvísindastofnun Kólumbía háskóla tekur þátt í rannsóknum á heimsvísu á sviði: loftslags- og samfélagsmála, vatns, orku, vistkerfa, heilsu, matvæla, áhættu og þéttbýlismyndunar.

Nánar

 

Rannsóknarráð Frakklands í Toulouse

Rannsóknarráð Frakklands í Toulouse (The Centre National de la Recherche Scientifique) er  rannsóknarstofnun styrkt af franska ríkinu og heyrir undir ráðuneyti rannsókna.

Nánar

 

Orkuveita Reykjavíkur

Orkuveitan er hátæknifyrirtæki sem sér rúmlega helmingi þjóðarinnar fyrir húshitun með jarðvarma, drykkjarvatni, rafmagni og fráveitu.  Orkuveitan byggir starf sitt á vísindalegri þekkingu og mikilli reynslu við úrlausn verkefna á sviði verkfræði, jarðfræði, verkefnisstjórnun og umfangsmikilli tækniþekkingu við öflun og dreifingu á orku og vatni á þann hátt að telst til eðlilegra lífsgæða.


Aðrir samstarfsaðilar